Fara í efni
Sumarhús

(seldur) Hallkelshólar 29

(seldur) Hallkelshólar 29

Hallkelshólar, 801 Selfoss, Fallegt mikið endurnýjað fjölskylduhús með fjórum svefnherbergjum á 10.000 fm leigulóð. Mjög rúmgott alrými og vel skipulagt hús. Milliloft er ekki inn í fm tölu hússins. þar eru tvö rúmgóð herbergi. Úr öðru þeirra er útgengi út á svalir.

Fasteignaland kynnir: Sumarhús í landi Hallkelshóla í Grímsnes-og Grafningshreppi. Um er ræða 42,9 fm hús auk 5,8 fm skúr eða samtals 48,7 fm samkvæmt þjóðskrá Íslands. Í þessu húsi er milliloft sem er ekki inn í fm tölu hússins. Auk þess er góð geymsla baka til, (sem er ekki inn í fm tölu hússins), þar sem gengið er inn af sólpalli. Búið að endurnýja húsið mikið. Ný rotþró, járn á þaki, gler, klæðningu að hluta til, rafmagn (eingöngu LED lýsing í húsi ) og innréttingar að innan.
Í þessu húsi eru rafmagnsofnar og hitakútur fyrir neysluvatn.

Lýsing á eign: Forstofa með flísaparketi á gólfi og fatahengi. Hol með flísaparketi á gólfi. Stofa og eldhús eru í sama rými. Stofan er með útgengi út á sólpall. Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu,nýjum ofni, uppþvottavél og keramik helluborði. Stór borðkrókur. Tvö herbergi á jarðhæðinni með flísaparketi á gólfi og góðu skápaplássi. Baðherbergi með flísaparketi á gólfi, viðarinnréttingu og nýjum sturtuklefa.

Milliloft: Komið upp í hol og eru tvö herbergi með físaparketi á gólfi. Annað herbergið er með svölum.

Stór sólpallur með skjólgirðingu. Heitum potti (rafmagnspotti).
Lóðin er 10.000 fm leigulóð og er lóðarleiga um kr. 208.000 á ári.
Sameiginlegur snjómmokstur á svæðinu.
Möguleiki er að fá búslóð með í kaupum á eigninni.

Dúkkuhús: 5,8 fm.Þarfnast endurnýjunar.
Gott bílaplan og góð aðkoma.

Þetta svæði er lokað með rafmagnshliði (símahlið)

Upplýsingar arni@fasteignaland.is sími 8980508