Fara í efni
Sumarhús

(Seldur)Glæsilegt sumarhús til sölu

(Seldur)Glæsilegt sumarhús til sölu

Skálalækjarás 13 í landi Indriðastaða í Skorradal.
Fasteignaland kynnir: Sumarhús í landi Indriðastaða sunnan megin við Skorradalsvatn. Um er ræða 90 fm sumarhús sem var byggt árið 2005 ásamt 44,6 fm gestahúsi sem var byggt árið 2014 eða samtals 134,6 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Á lóðinni er einnig sauna hús (gufubað). Aðalhúsið er á steyptum sökkli með gólfhita en gestahúsið liggur á dregurum. Hitakútar eru í húsunum fyrir neysluvatn en hitatúpa er í hvoru húsi fyrir gólfhita. Húsin eru á 7.143 fm eignarlóð kjarri vaxinni með glæsilegu útsýni yfir Skorradalsvatn. Í gegnum lóðina rennur á, (lækur). Svæðið er lokað með rafmagnshliði.

Lýsing á eign: Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi. Herbergisgangur með parketi á gólfi. Þrjú herbergi með parketi á gólfi. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Viðarinnrétting og sturta. Stofa og eldhúsið eru í sama rými með parketi á gólfi og góðri lofthæð. Eldhúsið er með viðarinnréttingu, eyju og vönduðum tækjum. Stofan er með parketi á gólfi, kaminu og útgengi út á sólpall á tveimur stöðum.
Geymsla: Gengið inn af palli við inngang hússins en þar eru inntök hússins og tengi fyrir þvottavél.
Gestahús: Skráð 44,6 fm. Hol með parketi á gólfi. Tvö herbergi með parketi á gólfi. Baðherbergi með flísum á gólfi og sturtuklefa. Stofa og eldhús í sama rými með parketi á gólfi og góðri lofthæð. Eldhús með fallegri viðarinnréttingu og ísskáp, útgengi út á sólpall.
Gufubað: Tvískipt með rafmagnsofni.
Stórir og mikli sólpallar með skjólgirðingu að hluta.
Þetta er falleg eign á frábærum stað í Skorradal. Góð aðkoma og næg bílastæði.
Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni. 

Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is

Sjá fleiri myndir hér