(Seldur) Fallegt Sumarhús til sölu Kringlumýravegur
Fasteignaland kynnir: Sumarhús við Kringlumýrarveg í Grímsnes-og Grafningshrepp. Um er að ræða 74,5 fm sumarhús ásamt 17,7 fm geymslu eða samtals 92,2 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Í húsinu er einnig milliloft sem er ekki inn í fm tölu hússins. Auk þess eru tvö gróðurhús á lóðinni. Húsið hefur verið mikið endurnýjað og vart byggt við það á árunum 2000 til 2015. Í Þessu húsi er hitaveita, ofnakerfi (lokað kerfi) og heitur pottur. Lóðin er 2.340 fm eignarlóð skógi vaxin.
Lýsing á eign: Forstofa með á kork gólfi og fatahengi. Hol með korg á gólfi. Tvö herbergi með kork á gólfi, annað með góðu skápaplássi. Baðherbergi með korki á gólfi, hvítri innréttingu og sturtuklefa. Stofa og eldhús með kork á gólfi, góðri lofthæð með útgengi út á sólpall. Eldhús með kork á gólfi. Fallegri hvítri innréttingu og vönduðum tækjum. Öll gólfefni eru með kork frá Þ.Þorgrímssyni.
Milliloft: Með opnanlegu fagi.
Geymsla: Skráð 17,7 fm með flísum á gólfi.
Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu. Heitur pottur.
Á lóðinni eru tvö gróðurhús.
Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.
Þetta er falleg eign og vel um gengið hús. Góð aðkoma og næg bílastæði.
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is