Efsti Dalur skammt frá Laugarvatni
Virkilega fallegt og vel staðsett sumarhús ásamt gesthúsi í landi Efsta Dals í Bláskógarbyggð, stutt frá Laugarvatni.
Eignin Efsti-Dalur Lóð 2b, birt stærð samkv. HMS er 67.4 fm. en við það bætist Gesthús um 15 fm og geymsla um 10 fm.
Lýsing eignar:
Forstofa: parket á gólfi, gott skápapláss.
Stofa: rúmgóð og björt stofa með aukinni lofthæð, parket á gólfi, stórir gluggar. Eldhús og stofa flæða saman og mynda fallega heild og útgengt er út á sólpall frá stofu.
Eldhús: parket á gólfi, hvít snyrtileg innrétting.
Svefnherbergi 1: rúmgott herbergi með parketi á gólfum.
Svefnherbergi 2: rúmgott herbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: parket á gólfi, upphengt salerni, sturtuklefi, lítil hvít innrétting undir vaski.
Sólpallur: er allan hringinn í kring um húsið, heitur pottur og fallega skjólgóð og gróin lóð.
Gesthús: um 15 fm. með parket á gólfi og snyrtileg salernisaðstaða.
Geymsluskúr: um 10 fm með flísum á gólfi.
Húsið er tengt við hitaveitu staðarins.
Húsið stendur á 5.900 fm fallegri gróinni leigulóð, ársleigan er um kr. 120.000,-
Í heildina er þetta 92,4 fm. Bústaðurinn er 67,4 fm, gestahús um 15 fm og geymsla um 10 fm.
Þetta er eign sem vert er að skoða, miklir útleigumöguleikar og frábær staðsetning.