Fara í efni
Sumarhús

(Seldur) Til sölu bústaður, Hallkelshólar 34

(Seldur) Til sölu bústaður, Hallkelshólar 34

Sumarhús í landi Hallkelshóla í Grímsnes-og Grafningshreppi. Um er ræða 50,2 fm sumarhús byggt árið 1985 samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Húsið stendur á glæsilegri skógi vaxinni leigulóð inn á skipulögðu sumarhúsasvæði.
Húsið skiptist: Forstofa með flísum á gólfi, fatahengi og góðu skápaplássi. Herbergisgangur með flísum á á gólfi, fataskáp og útgengi út á suður verönd. Þrjú herbergi með flísum á gólfi. Þvottahús með flísum á gólfi og sturtu. WC með flísum á gólfi og fallegri hvítri innréttingu. Stofan er með flísum á gólfi, góðri lofhæð og útgengi út á suður verönd. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og sambyggðri eldavél með keramik helluborði. Uppþvottavél og þvottavél fylgir með í kaupum á eigninni.

Í þessu húsi er varmadæla og hitakútur fyrir neysluvatn.
Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði. Svæðið er lokað með rafmagnshliði (símahlið).
Lóðin er 10.000 fm leigulóð, gróin og skógi vaxinn.
Lóðarleigusamningur er nýlegur til 25 ára.
Lóðarleiga er um kr. 215.000 á ári.

Hafið samband við Árna 8980508 arni@fasteignaland.is

Sjá nánar hér