Fara í efni
Fréttir

Sumarhúsið - Lífsstíll komin í loftið

Olga Björt Þórðardóttir, ritstjóri Sumarhússins - Lífsstíls.
Olga Björt Þórðardóttir, ritstjóri Sumarhússins - Lífsstíls.

Kæru lesendur, verið hjartanlega velkomin á glænýja vefsíðu, Sumarhúsið - Lífsstíl. 

Sumarbústaðamenning er fyrir löngu orðin lífsstíll tugþúsunda Íslendinga og ýmsar stefnur og straumar hafa náð fótfestu. Í hjörtum margra markaði rótgróna, nostalgíska A-bústaðamenningin upphafið og voru fyrst og fremst verustaðir yfir hásumarið og/eða félagsbústaðir. Menningin hefur heldur betur þróast í allar áttir og eru gríðarlega mörg sumarhús orðin íburðarmeiri en heimili fólks því margir dvelja þar meira og minna allt árið, sérstaklega fólk sem hefur lokið sínum atvinnuferli og nýtur lífsins. 

Hér á síðunni munum við fjalla um allt mögulegt sem tengist sumarhúsum á Íslandi og víðar. Hér verða upplýsingar um sumarhús til sölu, kaups og leigu, verktaka sem hægt er að leita til, fræðsla um söluferli, rekstrarkostnað, gróður og umhverfi, byggingavöruverslanir, innbú, sorpþjónustu, dægradvöl, öryggisfyrirtæki, jarðvinnuverktaka, fatnað, golfvelli, sundlaugar, veitingastaði og matvöruverslanir í næsta nágrenni. Þá verður vefsíðan vettvangur fyrir tilkynningar frá sveitarfélögum til sumarbústaðaeigenda. 

Fyrst og fremst verður efnið mannlegt og áhugavert, með fjölda viðtala við fólk sem þrífst í sumarhúsamenningunni um allt land. Sem lærður blaða- og fréttamaður með fjölbreytta 15 ára reynslu í fjölmiðlum er mitt hlutverk að standa mig í því og ég fagna öllum góðum ábendingum um efni í netfangið olga@sumarhusid.is eða í síma 6950207.

Hlakka til að heyra frá ykkur,

Olga Björt Þórðardóttir, ritstjóri.