Fara í efni
Sumarhús

(seldur) Fáskás 2, 311, Borgarbyggð til sölu

(seldur) Fáskás 2, 311, Borgarbyggð til sölu

Glæsilegt 55,6 fm sumarhús byggt 2022, með stórkostlegu útsýni, staðsett stutt frá Fossatúni í Borgarfirði.

Útsýnið og staðsetningin gerir þennan bústað verulega góðan kost fyrir útleigu, húsið stendur hátt og sést vel til fjalla og að sögn eiganda þá er upplifunin af norðurljósunum stórkostleg þarna, vegna lítillar ljósmengunar. Húsið var byggt með heilsárs búsetu í huga, og býr eigandinn í húsinu núna. Þarna er stutt í Grímsá og margar fallegar gönguleiðir sjá hér.



Húsið er byggt 2022, og er á vel staðsettri eignarlóð sem er 4778 fm, hér er um að ræða 55 fm sumarhús samkvæmt HMS, og geymslu (sem er ekki inní þessari fermetra tölu).
Húsið skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými þar sem eldhús og stofa flæða saman.


Forstofa: Forstofa með parket á gólfi, skápum og gert ráð fyrir þvottavél.
Eldhús: Góð lítil snyrtileg innrétting með uppþvottavél, gaseldavél og góðum ísskáp.
Borðstofa/Stofa: Með parket á gólfi, opin björt borðstofa sem flæðir með eldhúsinu og stofu, og er útgengt út á verönd.
Herbergi 1: Rúmgott herbergi með parket á gólfi og opnum skápum.
Herbergi 2: Með parket á gólfi og gott pláss fyrir koju.
Baðherbergi: Gott baðherbergi með sturtu, salerni og lítilli innrétingu undir handlaug.
Geymsla: Rúmgóð geymsla, sem samanstendur af skipagám sem hefur verið klæddur og einangraður, þarna er bæði hægt að geyma hluti og gera sér fína vinnuaðstöðu.


Góður sólpallur með frábærri aðstöðu til að sitja og njóta langt fram á kvöld og með rafmagns heitum potti..
Í þessu húsi er varmadæla af stærri gerðinni, sem heldur bústaðnum vel heitum og rafmagnskostnaði niðri. Einnig er gegnumstreymishitari frá Varmás, þar sem kalt vatn fer inn og heitt kemur út.

Þetta er frábær eign sem hefur lítinn árlegann kostnað.

Slóð á fasteignavef hér

Ásett verð er kr. 29.900.000,-

 

.