Fara í efni
Sumarhús

(Seldur) Hrísabrekka 1, 301 Akranes

(Seldur) Hrísabrekka 1, 301 Akranes

Hrísabrekka 1, 301 Akranes (Útsýni - 45 min frá Reykjavík - Endurnýjaður)

Um er að ræða mjög fallegan sumarbústað sem hefur fengið töluverðar endurbætur. Húsið er 61,7 fm skv. Þjóðskrá Íslands, bústaðnum hefur verið vel viðhaldið meðal annars, setja ný blöndunartæki, borðplötu og hurðar á skápa í eldhúsi, nýlegur sturtuklefi, skápur, vaskur og spegill á baði og nýtt parket á öllum gólfum. Einnig er nýbúið að klæða öll loft og bæta við skáp í aðalsvefnherbergi. Í þessu húsi er svo til ný varmadæla, sem lækkar rafmagnskostnað töluvert. Húsið er klætt með bárujárnsklæðningu að mestu leiti í bland við timburklæðningu. Húsið stendur á 7600 fm leigulóð.

Komið er inn í forstofu með fallegum gangi inn í aðalrými. Baðherbergið er snyrtilegt, nýlegur sturtuklefi, vaskur og skápur, spegill með ljósi og klósett. Þrjú svefnherbergi eru, tvö með kojum og svo er hjónaherbergið með fataskáp. Svefnpláss er því fyrir 7 manns, hið minnsta. Eldhúsið er með góðri innréttingu með, nýlegum vaski og blöndunartækjum, upprunalegri eldavél með bakaraofni. Í opna rýminu er kamína og útsýni er mjög fallegt í allar áttir. Húsið er umlykið sólpalli (360°) allan hringinn og lóðin, sem er mjög rúmgóð, er með sjálfsáðu birki sem komið er vel af stað. Gott bílastæði er við húsið sem getur rúmað mikið af bílum/tækjum og er eina húsið á þessum afleggjara. ATH, rafmagnspottur sem er á mynd, hefur verið fjarlægður og fylgir ekki með.

Hafið samband við Árna arni@fasteignaland.is