Fara í efni
Fréttir

Fallegt sumarhús í Skorradalnum til sölu

Fallegt sumarhús í Skorradalnum til sölu

Virkilega vel viðhaldið sumarhús í Skorradalnum, þegar gengið inn um forstofu þá taka tvö góð svefnherbergi og baðherbergi á móti ykkur. Eldhús og stofa eru samliggjandi og eru hjarta húsins, þar er góð kamína, og hátt er til lofts. Svefnloft er yfir hluta rýmisins og þar er góð svefnaðstaða. Sólpallur er í kringum allt húsið og geymsluskúr aðgengilegur frá palli, einnig er heitur pottur og skemmtileg gróin lóð.
Eignin Lækjarás 4 er skráð 57.6 fm samkvæmt HMS.

Lýsing eignar:
Forstofa: með parket á gólfi og góðu skápaplássi.

Tvö svefnherbergi: með parket á gólfi, rúmgóð og með góðu skápaplássi.

Baðherbergi: með salerni, vaski og sturtu, einnig er gert ráð fyrir þvottavél.
Eldhús/Stofa: með parket á gólfi, góð kamína í stofu og vel búin eldhúsinnrétting.
Svefnloft: með spónarparket á gólfi, og þar er hitakútur húsins.
Sólpallur: stór og góður pallur allan hringinn í kring um húsið og þar er heitur pottur og góður geymsluskúr.
Garður: góður garður sem búið er að gera skemmtilega aðstöðu fyrir börn að leika.

Frábært útsýni til fjalla og niður að Skorradalsvatni.

Upplýsingar um kostnað frá eigendum:
Fasteignagjald: 163.500 kr á ári.
Lóðaleiga: 169.437 kr á ári.
Félagsgjald sumarbústaðareigenda: 25.440 kr á ári.
Rafmagn: 21.000 kr á mánuði
Tryggingar bruna og innbú 109.000 kr á ári.